Jæja ,
Bóndadagurinn var í gær
og Björn bróðir Axels átti afmæli og
fékk bílpróf í gær! allt að gerast
Til
hamingju...
Já, ég kom mínum á óvart í gær
..
Planaði "date" og fór með Axel minn í strætó
eftir skóla í bæinn.. Fórum um kl 16:47 í bæinn og vorum komin um 6
leytið niðrí miðbæinn.. Ég hringdi á leigubíl og lét hann ná í
okkur og skutla okkur á Laugaveg 11 og Axel vissi ekkert hvað var
þar .. En þegar við komum sá hann að við vorum að fara að borða á
Ítalíu, geðveikt kósí staður!!
Svo þegar við vorum
búið að fá okkur forrétt og aðalrétt þá fór ég með hann í göngutúr
og löbbuðum að Hlemm og tókum leið 13 , hefði átt
að taka leið 16, en þessi stætó fór með okkur
að perlunni,var búin að segja að við værum að fara í áttina að
Kringlunni en svo var ekki. Fórum svo í smá gönu fram hjá Perlunni
og að Loftleiðum en fórum síðan upp brekku og að KEILUHÖLLINNI og
ég fór með hann í Diskókeilu.. Þetta var geðveikt gaman!

Tókum 2 leiki sem
Axel rústaði mér í
og svo fórum við í 8ball (sem hann
vann líka í) og svo fengum við mömmu og pabba til þess að vera
"Taxi drivers" fyrir okkur heim.. Þetta var frábært kvöld og
vona ég að honum hafi funndist þetta jafn skemmtilegt og mér
!!

Vona að þið hafið
séuð líka svona við ykkar maka!
Kær kveðja,
Tinna "rómó" hehe